Ólympíuhlaup ÍSÍ 2026
Magnaður árangur í Ólympíuhlaupi ÍSI!
Í lok september sýndu nemendur í Rimaskóla heldur betur hvað í þeim býr þegar Ólympíuhlaup ÍSI 2026 fór fram.
Alls hlupu 447 sprækir nemendur og lögðu saman að baki 1175 kílómetra!
hreint út sagt stórkostlegt úthald og samstaða hjá krökkunum.
Hreyfing, gleði og samvinna voru í fyrirrúmi og við gætum ekki verið stoltari af þessum flotta hópi.
Til hamingju með árangurinn, Rimaskóli!