Skóladagatal Rimaskóla
Hér fyrir neðan er skóladagatal Rimaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
Skóladagatalið sem birtist er gagnvirkt sem þýðir að ef eitthvað breytist í skóladagatalinu sérðu breytingarnar samstundis. Á þessari síðu getur þú líka náð í þitt eigið gagnvirka skóladagatal og pdf útgáfu af skóladagatalinu til að prenta út.
Náðu í pdf útgáfu af skóladagatalinu
Þú getur náð í pdf útgáfu af skóladagatalinu til að prenta út og hengja upp til dæmis á ísskápinn.
Viltu vera áskrifandi að skóladagatalinu?
Þegar þú ert áskrifandi að skóladagatalinu sérðu breytingar sem eru gerðar á dagatalinu í rauntíma. Þú getur bætt skóladagatalinu við þína eigin dagbók.
Ef foreldri eða annað fólk vill vera áskrifandi af skóladagatalinu og bæta því við sína dagbók í Outlook smellir það á:
- Bæta dagbók við
- Næst á Gerast áskrifandi á vefnum
- Þar límir fólk inn ICS skránna sem það fékk senda í tölvupósti frá kennaranum eða afritaði af vef skólans.
- Það þarf að skrifa nafn Dagbókar en tákn og litur er valkvætt.
- Næst er valið í hvaða dagbók áskriftin af skóladagatalinu á að birtast í fellilistanum fyrir neðan og síðan smellt á hnappinn flytja inn.
- Nú birtist dagatalið í hliðarstikunni.
Athugaðu að til þess að verða áskrifandi þarftu að afrita slóðina (copy link adress). Það er ekki nóg að hlaða niður skránni.