Stoðþjónusta

Teiknuð mynd af barni, kennara og foreldri sem sitja saman við borð.

Stefna Reykjavíkurborgar um sérkennslu og stuðning hefur skóla án aðgreiningar að megin leiðarljósi. Í því felst að skólinn veiti öllum nemendum sínum þjónustu fötluðum jafnt sem ófötluðum. Kennaranum er ætlað að aðlaga kennslu sína að nemendahópnum og þarf því að beita mismunandi kennsluaðferðum og vera með mismunandi viðfangsefni fyrir nemendur sína. 

""

Heilsugæsla

Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta.

Teikning af húsi ofan á bók.

Námsráðgjöf

Námsráðgjafai við skólann veitir nemendum persónulegan og félagslegan stuðning í námi.

""

Menntun fyrir alla

Í grunnskólum Reykjavíkur er sérhverju barni mætt í námi óháð atgervi þess og stöðu.

Heildaráætlun Rimaskóla um stuðning

Grunnskóli er vinnustaður nemenda. Allir nemendur grunnskóla eiga rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan. Rimaskóli starfar í anda skóla án aðgreiningar og leitast við af fremsta megni að fara eftir stefnu Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar við vinnu með öllum nemendum. Rimaskóli hefur samið heildaráætlun um stuðning við nemendur með fötlun eða sérþarfir, hegðunarörðugleika, tilfinninga- og félagsvanda. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengiliði farsældar:

 

Tengiliður Rimaskóla er Jóhanna Kristín Snævarsdóttir