Glæsilegur sigur Rimaskóla í Upplestrarkeppninni!

upp 5
Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna í Grafarvogi fór fram í Grafarvogskirkju í gær miðvikdag. 
Þar mættu til leiks öflugir fulltrúar úr öllum skólum hverfisins og var samkeppnin hörð.
Fulltrúar Rimaskóla voru þær Sara Lovísa og Thelma Rakel. Þær stóðu sig báðar frábærlega og voru skólanum til mikils sóma. Eftir glæsilegan upplestur bar Thelma Rakel sigur úr býtum og tryggði Rimaskóla fyrsta sætið. 
Í öðru sæti var fulltrúi frá Engjaskóla og í því þriðja fulltrúi frá Húsaskóla.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur og sömuleiðis öllum hinum skólunum í Grafarvogi fyrir þeirra flottu nemendur. 
uppl2 upp1 uppl 4

Áfram Rimaskóli!