Hlynur Darri í Rimaskóla meðal vinningshafa í teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar
Hlynur Darri í Rimaskóla meðal vinningshafa í teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar.
Hlynur Darri, nemandi í 4. bekk í Rimaskóla, er einn af tíu vinningshöfum í árlegri teiknisamkeppni grunnskólanema sem haldin var í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn. Úrslit keppninnar liggja nú fyrir, en mikill fjöldi verka barst að þessu sinni.
Alls sendu nemendur úr 70 skólum um land allt inn rúmlega 1.300 teikningar. Hugmyndaflug Hlyns Darra fleytti honum alla leið í verðlaunasæti, en dómnefnd sagði verkefnið í ár hafa verið sérstaklega krefjandi vegna mikilla gæða og sköpunargleði.
Fyrir vikið fær bekkjarsjóður hans 40.000 króna peningagjöf frá MS.