Kiddi kokkur fær Cordon Bleu orðuna!

kiddi 2

Við fögnum stórglæsilegum áfanga í mötuneytinu okkar. Matreiðslumeistarinn okkar, hann Kristján Magnússon (Kiddi kokkur), fékk Cordon Bleu orðuna um daginn.

Cordon Bleu orðan er ein virtasta viðurkenning sem veitt er innan matreiðslugeirans hér á landi. Hún er jafnan veitt þeim einstaklingum sem hafa skarað fram úr á sínu sviði, lagt sitt af mörkum til þróunar matarmenningar og sýnt fram á stöðugan og framúrskarandi árangur í gegnum feril sinn.

Við erum ótrúlega stolt af honum Kidda okkar og heppin að njóta krafta hans á hverjum degi!