Þemadagar í Rimaskóla
Þemadagar í Rimaskóla
Þemadagar Rimaskóla voru haldnir í gær þriðjudag og í dag miðvikudag og var yfirskriftin góðverk og nærumhverfi.
Mikill kærleikur sveif yfir vötnum þegar nemendur úr mismunandi árgöngum sameinuðu krafta sína í fjölbreyttum verkefnum.
Lögð var áhersla á að láta gott af sér leiða í nágrenninu meðal annars föndruðu nemendur vinabönd, bjuggu til fuglafóður og skrifuðu kort með fallegum boðskap sem þau hengdu á hurðahúna hjá íbúum í hverfinu,auk þess fóru hópar í könnunarferðir um svæðið til að kynnast einkennum umhverfis síns betur.
Innan veggja skólans var líka margt um manninn nemendur spiluðu saman og gæddu sér á heitu kakói og ilmandi kanilsnúðum.
Það var gaman að sjá eldri og yngri nemendur vinna saman og styrkja vinaböndin.