Námsmat í Rimaskóla
Undanfarin misseri hefur Rimaskóli verið að innleiða leiðsagnarnám en það er heiti á námsmenningu þar sem megináherslan er á nám nemanda fremur en kennslu kennarans.
Samvinna og samræður
Nemendahópurinn er námssamfélag þar sem rík áhersla á samvinnu og samræður um námið og á ábyrgð nemenda. Nemendahópar eru getublandaðir og unnið með forþekkingu nemenda. Litið er svo á að allir nemendur geti aukið framfarir sínar í námi og að skýr námsmarkmið og vitneskja um hvernig gott verkefni eða góður árangur er, gerir námið markvissara, ánægjulegra og auðveldara.
Endurgjöf
Vel ígrunduð og regluleg endurgjöf er lykilatriði. Litið er svo á að endurgjöfin hafi einungis þýðingu ef nemandinn getur nýtt sér hana til framfara. Tilgangur matsins er ávallt að greina hvar nemandinn stendur á leið sinni að skilgreindum markmiðum til að greina hvaða stuðning hann þarf til auka framfarir sínar.
Áhersla er á vaxtarhugarfar (Growth mindset) og væntingar um árangur. Nemendur eru meðvitaðir um hvenær og hvernig nám fer fram. Þrautseigja er talin happasælli en gáfur og litið er svo á að mistök skapi tækifæri til að læra.
Leiðsagnarmat er veitt jafnt og þétt í öllum kennslustundum í þeim tilgangi að styðja nemendur í átt á markmiðum sínum. Lokamat er hins vegar endanlegt mat þar sem ekki er gengið út frá því að nemandinn hafi tækifæri til að bæta framfarir sínar á viðkomandi sviði
Allt starf skólans byggir á áherslum í Aðalnámskrá grunnskóla og Menntastefnu Reykjavíkurborgar.