Síðasta vikan í Rimaskóla á skólaárinu 2024-2025

Seinasta vikan

Skipurlag seinustu viku í Rimaskóla 
________________________________________
Þriðjudagur - Útivistardagur 08:30/08:50-12.30 (8.-10.b hefja skóladaginn kl. 08:50).
.    1.-6. bekkur: Nemendur fara í grenndarskóginn og sjá leikritið Dýrin í Hálsaskógi sem nemendur í 6. bekk hafa sett upp.
.    7.-10. bekkur: Taka þátt í íþróttadegi.
Athugið: Spáð er leiðinlegu veðri, svo mikilvægt er að nemendur komi vel klæddir.
________________________________________
Miðvikudagur - Útivistardagur 08:30/08:50-12.30 (8.-10.b hefja skóladaginn kl. 08:50).
.    1.-6. bekkur: Taka þátt í íþróttadegi með fjölbreyttum stöðvum á skólalóðinni.
.    7.-9. bekkur: Fara í ferðir með kennurum.
.    Kl. 17:00: Útskrift 10. bekkjar fer fram í hátíðarsal skólans.10.bekkur mætir bara í skólann hér.
Vegna veðurs höfum við flýtt útskriftinni og seinkað útskriftarferðinni.
________________________________________
Fimmtudagur - Vorhátíð
.    Skóli er frá kl. 9:00-12:00.
.    Haldið verður vorhátíð á skólalóðinni með veltibíl, hoppuköstulum, leiktækjum og fleiru skemmtilegu.
.    Foreldrar eru hjartanlega velkomnir að taka þátt með okkur.
.    Kl. 11:30 fá nemendur pylsur og djús áður en þeir fara heim.
________________________________________
Föstudagur - Skólaslit
Skólaslit fara fram í sal skólans samkvæmt eftirfarandi tímasetningum:
.    Kl. 09:00 - 1. og 2. bekkur
.    Kl. 09:30 - 3. og 4. bekkur
.    Kl. 10:00 - 5. og 6. bekkur
.    Kl. 10:30 - 8. og 9. bekkur
.    Kl. 11:30 - 7. bekkur
Eftir skólaslit fara nemendur í stofur með kennurum sínum og eru svo komnir í sumarfrí!
________________________________________
Við hlökkum til skemmtilegrar viku með nemendum og vonumst til að sjá sem flesta foreldra á fimmtudaginn!

 

________________________________________