6 bekkjar ferð til Stykkishólms
Sjötti bekkur fór í vel heppnaða ferð í Stykkishólm í gær með viðkomu á Grábrók og Erpsstöðum. Þau gistu í grunnskólanum, kynntust fullt af frábærum krökkum og enduðu ferðina á eftirminnilegri siglingu um Breiðafjörð.
Umsjónarkennararnir Anna Guðný, Helga og Íris unnu hörðum höndum við að skipuleggja fjáröflun fyrir ferðina og panta alla viðburði. Foreldrar hjálpuðu til við að finna tilboð í rútuna. Krakkarnir útbjuggu skólablað, leituðu styrkja í blaðið og seldu það. Virkilega skemmtilegt framtak og það fer svo sannarlega í reynslubankann!