Innra mat á skólastarfi í Rimaskóla
Lögð er áhersla á að allir starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar vinni markvisst innra mat sem er óaðskiljanlegur hluti af skóla- og frístundastarfi. Í því flest fagleg ígrundun og greining á gögnum til að meta gæði skólastarfs og hvort að tilætlaður árangur hafi náðst út frá fyrir fram ákveðnum viðmiðum.
Með sjálfsmati skoða skólar og meta eigin starfsemi, styrkleika og þætti sem hægt er að bæta. Markmið sjálfsmatsáætlunarinnar er að stuðla að stöðugri endurskoðun og þróun, þannig að námsumhverfi og kennsla verði sífellt betri og árangursríkari fyrir alla nemendur.
Innra mat Rimaskóla
Í Rimaskóla er fagþróunarteymi sem heldur utan um innra mat. Heildaráætlun Rimaskóla felur í sér fjóra þætti:
- Langtímaáætlun
- Áætlun fyrir skólaárið
- Greinargerð um innra mat
- Umbótaáætlun
Fagþróunarteymi Rimaskóla nýtir forritið BravoLesson í að halda utan um gögn. Í skýrslum BravoLesson má fá meiri upplýsingar enda umfangsmeiri skýrsla.
2026-2027 - Heildaráætlun Rimaskóla í innra mati.
2025-2026 - Heildaráætlun Rimaskóla í innra mati.
2026 - Bravo Lesson - Greinagerð um innra mat.
2025 - Bravo Lesson - Greinagerð um innra mat